Grunur um kynferðislega misnotkun í sértrúarsöfnuði 19. apríl 2008 13:15 Dómshús í Harris sýslu í Texas MYND/Úr safni
Dómari í Texas í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að 416 börn verði færð undir forræði yfirvalda þar til DNA sýni skeri úr um hverjir foreldrar þeirra séu. Börnin tilheyra sértrúarsöfnuði sem hvetur til fjölkvænis og leikur grunur á að ungar stúlkur séu kynferðislega misnotaðar. Málið hefur vakið mikla athygli og óhug í Bandaríkjunum og víðar, enda þykir það minna um margt á harmleikinn í Waco í Texas árið 1993 þar sem 80 meðlimir sértrúarsafnaðar brunnu inni á búgarði eftir rúmlega 50 daga fyrirsát alríkislögreglunnar. Málið er umfangsmesta barnaverndarmál í sögu Bandaríkjanna. Það hófst þegar 16 ára stúlka leitaði á náðir kvennaathvarfs eftir að fimmtugur eiginmaður hennar hafði gengið í skrokk á henni og nauðgað. Hún var þá ófrísk af öðru barni þeirra, en lágmarksaldur til að hafa samræði í Texas er 17 ár. Í kjölfarið gerði lögregla áhlaup á búgarð safnaðarmeðlima og vöru börnin, sem eru á aldrinum sex mánaða til 17 ára, færð undir forræði barnaverndar yfirvalda. Réttarhöldin yfir forræði barnanna leystust á tímabili upp í vitleysu þar sem yfir 300 lögfræðingar á vegum safnaðarmeðlima gerðu dómara lífið leitt með endalausum inngripum. Á endanum var þó ákveðið að fela yfirvöldum forræðið. Ómögulegt hefur reynst að rekja hverjir foreldrar barnanna eru þar sem safnaðarmeðlimir hafa neitað að starfa með lögreglu. Segja þeir að um trúarofsóknir sé að ræða. Söfnuðurinn klofnaði frá Mormónakirkjunni fyrir rúmlega 100 árum síðan. Hann þykir ýta undir fjölkvæni, enda trúa safnaðarmeðlimir að karlmenn verði að eiga að minnsta kosti þrjár eiginkonur til að komast í himnaríki. Á meðan er stúlkunum kennt að leið þeirra til himnaríkis liggi í óbilandi hollustu og undirgefni við eiginmanninn. Lögreglu grunar að ungar stúlkur séu misnotaðar í stórum stíl og að stúlkur allt niður í 13 ára hafi orðið barnshafandi. Leiðtogi safnaðarins hetir Warren Jeffs. Hann situr nú í fangelsi fyrir að neyða 14 ára stúlku til að giftast frænda sínum.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira