Íslendingar urðu vitni að árás Ísraelshers á Nablus Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 8. júlí 2008 12:21 Anna Tómasdóttir og Yousef Ingi Tamimi.
Íslenskir sjálfboðaliðar voru staddir í borginni Nablus á Vesturbakka Palestínu í nótt þegar Ísraelsher réðst inn í miðborgina til þess að loka öllum stofnunum, verslunum, spítölum og fleiru tengdu Hamas-samtökunum. „Þeir komu inn með heila herfylkingu sem ruddist inn í borgina með skothvellum og sprengjuárásum. Við og örugglega flestir aðrir íbúar Nablus gátum ekkert sofið í nótt," segir Yousef Ingi Tamimi, einn íslensku sjálfboðaliðanna í Palestínu. Yousef hefst við í sjálfboðaliðabúðum ásamt Önnu Tómasdóttur en einn annar Íslendingur er einnig á svipuðum slóðum. Yousef segir að Íslendingarnir hafi ekki verið í neinni lífshættu og hann veit ekki til þess að neinn óbreyttur borgari hafi fallið í árásinni. Heilli verslunarmiðstöð lokað fyrir litlar sakirNablus.Eins og áður segir var árásinni beint að stofnunum og fleiru tengdu Hamas-samtökunum. Yousef nefnir sem dæmi að heilli verslunarmiðstöð hafi verið lokað og eiganda hennar varpað í steininn vegna mögulegra tengsla við Hamas. Yousef segir þetta koma einkum niður á almennum verslunareigendum í miðstöðinni því þarna er á einu bretti kippt undan þeim fótunum án þess að þeir hafi unnið sér neitt til sakar. „Samkvæmt yfirlýsingu frá hernum verður líka öllum þeim sem koma inn í verslunarmiðstöðina varpað í fangelsi í fimm ár en ég veit ekki hvort þeir láta verða af því," útskýrir Yousef. Fólk heldur áfram að lifa sínu lífiHermenn í Bilin.Yousef segir að fólk hafi orðið fyrir töluverðu áfalli í kjölfar árásarinnar. „Ísraelsher er hér allar nætur og íbúar hér eru vanir því að herinn komi inn með látum. Þetta er hins vegar með því mesta sem þeir hafa lent í. Fólk heldur samt áfram að lifa lífi sínu enda ekkert annað sem það getur gert."
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Innlent Fleiri fréttir Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump Sjá meira