Tólf þúsund hið minnsta látnir í Kína 13. maí 2008 11:58
Umfangsmiklar björgunaraðgerðir standa yfir í suð-vesturhluta Kína eftir að einhver öflugasti jarðskjálfti í áratugi reið þar yfir í gær. Minnst tólf þúsund manns fórust og er eftirlifenda leitað í rústum húsa. Fyrstu björgunarsveitirnar náðu í morgun til Wenchuan í Kína sem er nærri upptökum skjálftans í Sichuan héraði í suðvesturhluta landsins. Skjálftinn mældist 7,9 á Richter. För björgunarsveitarmanna gekk erfiðlega þar sem um þrjátíu eftirskjálftar hafa orðið, allir af stærðargráðunni fjórir á Richter eða öflugri. Grjóthraun hefur orðið víða á svæðinu og aurskriður fallið yfir vegi. Ekki hefur verið hægt að lenda þyrlum víða vegna slæms veðurs. Enn hafa engar upplýsingar borist um mannfall í Wenchuan en þar búa rúmlega hundrað og tíu þúsund manns. Vitað er að nærri tólf þúsund hið minnsta fórust í jarðskjálftanum í gær en óttast að tala látinna eigi eftir að hækka töluvert. Eftirlifenda er leitað í rústum húsa í Sichuan héraði. Sérfræðingar segja næstu tvo sólahringa ráða því hvort fólk finnst lífs eða liðið. Eftir að þrír sólahringjar eru liðnir frá jarðhræringum séu nær engar líkur á að fólk finnist lifandi í rústum húsa.Wen Jiabao, forsætisráðherra, lagði af stað á hamfarasvæðið í gær og hitti marga þeirra sem bjargað var í morgun. Yfirvöld hafa hvatt Kínverja til að gefa blóð til hjálparstarfsins.Jarðskjálftinn í gær er sá mannskæðasti í Kína síðan 1976. Þá fórust tvö hundruð og fjörutíu þúsund manns í skjálfta í borginni Tangshan nærri Peking.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Fleiri fréttir Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Sjá meira