Erlent

Miklar líkur á íslausum Norðurpól í sumar

Heimskautaísinn við Norðurpólinn bráðnar nú svo hratt að miklar líkur eru á að Norðurpólinn verði íslaus í sumar.

Bandarískur vísindamaður við Snjó- og ís upplýsingamiðstöðina í Colorado í Bandaríkjunum heldur þessu fram. Vísindamaðurinn, Mark Serreze segir að allar mælingar sýni að ísinn bráðnar mun hraðar það sem af er sumri en hann gerði í fyrra sem þó var metár hvað bráðnunin varðar.

Serraze segir í samtölum við bandaríska fjölmiðla að það sem af er ári hafi íshella á stærð við Kaliforníuríki bráðnað við Norðurpólinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×