Bandaríkjamenn móðga Berlusconi SHA skrifar 8. júlí 2008 14:56 Berlusconi og Bush meðan allt lék í lyndi. MYND/AP
Bandaríkjastjórn hefur sent frá sér formlega afsökunarbeiðni til Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu. Ástæðan er sú að í upplýsingapakka frá Bandaríkjastjórn var að finna lýsingu á ævi Berlusconi þar sem hann var sagður „hataður af mörgum". Þessum sérstaka upplýsingapakka var dreift til blaðamanna sem ferðuðust með George W. Bush, Bandaríkjaforseta, til Japans á fund átta helstu iðnríkja heims. Ekki nóg með það heldur var Berlusconi einnig sagður hafa fengið pólitísk völd sín í gegnum eignarhald sitt á fjölmiðlum og að hann væri „einn umdeildasta leiðtogi í sögu þjóðar sem er þekkt fyrir spillingu og lélegt siðgæði stjórnvalda." Tony Fratto, talsmaður Hvíta hússins, baðst fljótt afsökunar á mistökunum og sagði að umsögnin endurspeglaði ekki skoðanir Bush forseta, ríkistjórn Bandaríkjanna eða bandarísku þjóðarinnar. Samskipti Bush og Berlusconi hafa til þessa verið einkar vinsamleg og hefur Berlusconi meðal annars verið nokkuð ötull stuðningsmaður stríðsrekstursins í Írak auk þess sem Berlusconi er einn fárra sem Bush hefur persónulega boðið í heimsókn á búgarð sinn í Texas. Eitthvað virðist þó hafa slest upp á vinskapinn í kjölfar lýsingarinnar í upplýsingapakkanum því Bush og Berlusconi funduðu ekkert saman á G8-ráðstefnunni í Japan.
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent „Margt óráðið í minni framtíð“ Innlent Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Innlent Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Innlent Fleiri fréttir Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Sjá meira