Erlent

Mjótt á munum milli Obama og McCain

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun tímaritsins Newsweek er nú mjótt á munum milli Barak Obama og John McCain í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum. Obama mælist með 44% en McCain með 41%.

Fyrir aðeins mánuði síðan mældist Obama með 15% meira fylgi en McCain. Fréttaskýrendur telja að stefnubreytingar Obama í mikilvægum málaflokkum til að ná betur til kjósenda á miðju hins pólitíska litrófs valdi því að gengi hans dalar nú.

Hinsvegar kunna þeir litla skýringu á auknu fylgi McCain sem kemur þeim verulega í opna skjöldu. McCain hefur átt á brattan að sækja í þeim málum sem hann hefur helst deilt um við Obama um, það er orku- og efnahagsmálum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×