Erlent

Obama græðir á efnahagskreppunni í könnunum

Barack Obama, forsetaframbjóðandi demókrata, hefur níu prósentustiga forskot á John McCain, frambjóðanda repúblikana, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem gerð hefur verið í Bandaríkjunum.

Samkvæmt könnuninni styðja 52 prósent líklegra kjósenda Obama en 43 prósent McCain. Þá sýnir könnunin, sem fréttamiðlarnir ABC og Washington Post gerðu, að 53 prósent treysta Obama betur fyrir efnahagsmálunum en 39 prósent McCain.

Stjórnmálaskýrendur telja að McCain sé í þessari könnun að gjalda fyrir það hvernig efnahagsmálum er fyrir komið vestra en Bush-stjórnin berst nú fyrir því að koma 700 milljarða króna björgunarsjóð fyrir efnahagslífið í gegnum Bandaríkjaþing.

McCain hefur farið fram á það að fyrirhuguðum kappræðum hans og Obama á föstudag verði frestað vegna efnahagskreppunnar en McCain vill halda til Washington til þess að reyna að skapa sátt um björgunaraðgerðir Bandaríkjastjórnar. Í herbúðum Obama segja menn hins vegar að ekki sé vilji til að fresta kappræðunum enda eigi Bandaríkjamenn rétt á því að heyra hvernig næsti forseti landsins hyggist taka á efnahagskreppunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×