Erlent

Rannsókn á sprengingunni í Pakistan hafin

Nanna Hlín Halldórsdóttir skrifar
rannsóknarteymi leitar nú í brakinu eftir sprenginguna
rannsóknarteymi leitar nú í brakinu eftir sprenginguna

Degi eftir sprenginguna fyrir utan danska sendiráðið í Islamabad í Pakistan er byrjað að leita að vísbendingum hver stóð að verknaðinum. Teymi rannsóknarmanna grannskoða nú brak á vettvangi.

Enginn hefur lýst verknaðinum á hendur sér en grunur beinist að hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda vegna skopskælinga af Múhammeð spámanni sem birtust í Danmörku.

Leiðtogi Talibana í Pakistan sem og aðrir herskáir hópar sem gætu hafa staðið að árásinni eru í friðarviðræðum við stjórnvöld þar í landi. Þó eru fleiri herskáir hópar sem gætu hafa staðið að árásinni sem hafa staðið að árásum að vestrænum erindrekum áður.

Reynt er að finna út hvort um sjálfsmorðssprengingu hafi verið að ræða en talið er að sá sem stóð fyrir árásinni hafa notað fölsuð diplómatísk leyfi til að komast svo nálægt sendiráðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×