Innlent

Vilja að viðræðum við Heilsuverndarstöðina verði slitið

Fyrirhugað áfangaheimili verður starfrækt í Hólavaði 1-11 í Norðlingaholti.
Fyrirhugað áfangaheimili verður starfrækt í Hólavaði 1-11 í Norðlingaholti.

Vinstri grænir vilja að samningaviðræðum velferðarráðs Reykjavíkur við Heilsuverndarstöðina um rekstur fyrirhugaðs áfangaheimilis í Hólavaði verði slitið. VG vill að teknar verði upp viðræður við SÁÁ með það að markmiði að heimilinu verði komið fyrir á landi samtakanna í Vík á Kjalarnesi.

,,Það er tímabært að höggva á hnútinn í þessu erfiða máli og borgarfulltrúum er skylt að hafa það í huga að hagsmunir þeirra sem eiga að njóta úræðisins og hefur ekki verið sinnt í meira en eitt og hálft ár eiga að vera í fyrirrúmi," segir í bókun sem Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG, lagi fyrir borgarráð fyrr í dag.

Fyrirhugað er að í haust opni áfangaheimili í Hólavaði 1 til 11 í Norðlingaholti á vegum Heilsuverndarstöðvarinnar. Vísir greindi frá því í júlí að eigandi raðhúsalengjunnar við Hólavað var lýstur gjaldþrota í apríl. Einn kröfuhafa, Byr Sparisjóður, leysti eignir fyrirtækisins til sín.

SÁÁ og Vinstri grænir gagnrýndu ákvörðun velferðarráðs Reykjavíkur að ganga til samninga við fyrirtækið þar sem tilboð SÁÁ var lægra. Við val á samstarfsaðila hafði talsverð áhrif að Heilsuverndarstöðin hafði til taks ,,afar hentugt húsnæði fyrir umrædda starfsemi."

10. júlí afhentuíbúar í Norðlingaholti Ólafi F. Magnússyni, borgarstjóra, ríflega 300 undirskriftir íbúa í hverfinu sem andsnúnir eru staðsetningu áfangaheimilisins. Þeir gagnrýndu borgaryfirvöld fyrir að hafa ekki kynnt fyrirhugað heimili og starfsemina fyrir sér.

Stella Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, sagði í samtali við Vísi 21. júlí að beðið væri eftir að málefni fyrirhugaðs áfangaheimilis í Hólavaði skýrist og því væri enn óvissa um hvort og hvenær starfsemi þess hefjist.

Bókun borgarfulltrúa VG:

Það er nú endanlega ljóst að húsnæði það sem Heilsuverndarstöð/Alhjúkrun hampaði í tilboði sínu og talin hefur verið veigamikill þáttur röksemdafærslu fyrir því að taka ekki lægsta tilboði, var komið í gjaldþrotaskipti áður en tillaga um úrræðið var lögð fyrir velferðarráð 9. apríl. Gögn sem lögð voru fyrir borgarráð frá Hag ehf. reyndust auk þess einskisverður pappír og var borgarráð þar með blekkt. Þetta er í sjálfu sé næg ástæða fyrir því að slíta samningsviðræðum.

Veruleg andstaða er í Norðlingaholti gegn þessari viðamiklu og viðkvæmu starfsemi sem sennilega er betur sett fyrir utan þéttbýlið með hagsmuni þjónustuþega í huga. Svo heppilega vill til að SÁÁ á land við meðferðastöðina Vík á Kjalarnesi sem búið er að skipuleggja og auðvelt væri að byggja þar yfir viðkomandi búsetuúrræði.

Það er tímabært að höggva á hnútinn í þessu erfiða máli og borgarfulltrúum er skylt að hafa það í huga að hagsmunir þeirra sem eiga að njóta úrræðisins og hefur ekki verið sinnt í meira en eitt og hálft ár eiga að vera í fyrirrúmi. Búsetuúrræði í tengslum við meðferðarstað á útmörkum borgarinnar væri æskilegur kostur með tilliti til batamöguleika þessa fólks. Það eru því sár vonbrigði að enn skuli málinu vera frestað.

 










Tengdar fréttir

Þorleifur: Borgarráð var blekkt

Þorleifur Gunnlaugsson segir að borgarráð hafi verið blekkt þegar yfirlýsing frá Heilsuverndarstöðinni og Hag var lögð fyrir ráðið 26. júní síðastliðinn.

Segir sviðsstjóra pólitíska aðstoðarkona

Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG, segir Jórunni Frímannsdóttir hafa fengið sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkur með sér í ,,pólitískan slag" en saman hafa þær skrifað greinar um búsetuúrræði með félagslegum stuðningi.

Áfangaheimili opnar ekki nema húsnæði verði tryggt

Velferðarsvið Reykjavík hefur ekki lokið við gerð samnings við Heilsuverndarstöðina um rekstur áfangaheimilis í Hólavaði í Norðlingaholti þar sem ekki liggur endanlega fyrir hvort umrætt húsnæði sé til ráðstöfunar þar sem það er nú í eigu þrotabús.

Afhenda borgarstjóra undirskriftalista

Íbúar í Norðlingaholti afhenda Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra undirskriftalista í dag með mótmælum yfir 300 íbúa í nágrenni við fyrirhugað áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í hverfinu í haust.

Enn óvissa með áfangaheimili

Stella Víðisdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir að beðið sé eftir að málefni fyrirhugaðs áfangaheimilis í Hólavaði skýrist og því sé enn óvissa um hvort og hvenær starfsemi þess hefjist.

Eðlilega staðið að samningi um áfangaheimili

Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar telur málefnalegar forsendur liggja að baki ákvörðun velferðarráðs að semja við Heilsuverndarstöðina/Alhjúkrun um áfangaheimili fyrir einstaklinga eftir meðferð.

Óvissa með húsnæði áfangaheimilis

Eigandi húsnæðis sem Heilsuverndarstöðin ætlar að nýta sem áfangaheimili í raðhúsalengju í Norðlingaholti var tekinn til gjaldþrotaskipta í apríl. Því er enn óvissa um hvort starfsemin hefjist á réttum tíma.

Undirskriftalistar afhentir í vikunni

Undirskriftalistar íbúa í Norðlingaholti gegn fyrirhuguðu áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í haust í Hólavaði verða afhentir borgaryfirvöldum á miðvikudaginn.

Veðhafi leysir fyrirhugað áfangaheimili til sín

Byr sparisjóður leysir líklega í dag til sín eignir þrotabús Í skilum sem meðal annars á fasteignirnar Hólavað 1 til 11 en Reykjavíkurborg hyggst opna þar áfangaheimili í haust.

Málaferli erfið leið fyrir SÁÁ

Ari Matthíasson framkvæmdastjóri SÁÁ segir að samtökin eigi mikið undir samstarfi við Reykjavíkurborg og ríkið sem kaupi ákveðna þjónustu af samtökunum. Af þeim sökum sé ,,erfitt að standa í stjórnsýslukærum gagnvart þessum aðilum."

Undirskriftasöfnun hafin gegn áfangaheimili

Hafin er undirskriftasöfnun í Norðlingaholti gegn fyrirhuguðu áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í haust. ,,Ég er skelfingu lostin yfir þessari ákvörðun," segir Díana Fjölnisdóttir.

,,Hún er ekki aðstoðarkona mín"

Jórunn Frímannsdóttir segir skrif Þorleifs Gunnlaugssonar um samvinnu hennar og sviðsstjóra velferðarsviðs vera sérstök. ,,Ég þekkti Stellu ekki persónulega áður en hún var ráðin. Hún er ekki aðstoðarkona mín," segir Jórunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×