Innlent

Viðtalið við Björgólf Thor í Kompási

Í fréttaskýringaþættinum Kompási var í kvöld rætt við Björgólf Thor Björgólfsson. Þáttinn er hægt að nálgast hér.

Hvöss spjót beinast nú að Björgólfi Thor Björgólfssyni, ríkasta manni Íslands. Hann er sakaður um að bera að hluta til ábyrgð á hruni íslenska efnahagskerfisins. Hann svarar hér gagnrýninni en er jafnframt ómyrkur í máli gagnvart ríkisvaldinu og Seðlabanka. Hann upplýsir hvað gerðist bak við tjöldin þá örlagaríka daga þegar hagkerfið rambaði á barmi hruns og sakar stjórnvöld um að hafa tekið kolrangar ákvarðanir, þrátt fyrir alvarleg viðvörunarorð. Það voru skelfileg mistök að þjóðnýta Glitni, segir hann og upplýsir einnig hvernig stjórnvöld virtu ekki viðlits tilboð um að losna undan Icesave ábyrgðum sama dag og neyðarlög voru sett í landinu. Þetta telur Björgólfur Thor að skýri hin harkalegu viðbrögð Breta og alvarlega milliríkjadeilu landanna.

Landsbankinn fór á breskan hryðjuverkalista með Al-Qaida, Súdan, Norður-Kóreu og Talibönum. Bretar heimta að íslenska þjóðin ábyrgist hundruð milljarða króna vegna Icesave innlánsreikninga Landsbankans. Gífurleg reiði hefur blossað upp meðal þjóðarinnar í garð Björgólfsfeðga. Það er krafist þjóðnýtingar og eignaupptöku, í það minnsta samfélagslegrar og siðferðislegrar ábyrgðar af þeirra hálfu. Kristinn Hrafnsson tók viðtal við Björgólf Thor í London á föstudag.

Björgólfur Thor upplýsir hér í fyrsta sinn að degi áður en hér voru sett neyðarlög hafi Bretar kúvent og boðist til að taka Icesave undir breska ábyrgð á fimm dögum gegn því að Seðlabankinn veitti tryggingu. Þessu hafi Seðlabankinn hafnað og í staðinn hrundi restinn af íslensku bankakerfi og þjóðin lenti í harðvítugri milliríkjadeilu. Helgina áður fullyrðir Björgólfur að ríkisvaldið hafi ekki einu sinni svarað tilboðum sem hefðu hindrað þjóðnýtingu Glitnis og afstýrt örlagaríku hruni bankakerfisins.




Tengdar fréttir

Björgólfur Thor

Hvöss spjót beinast nú að Björgólfi Thor Björgólfssyni, ríkasta manni Íslands. Hann er sakaður um að bera að hluta til ábyrgð á hruni íslenska efnahagskerfisins. Hann svarar hér gagnrýninni en er jafnframt ómyrkur í máli gagnvart ríkisvaldinu og Seðlabanka. Hann upplýsir hvað gerðist bak við tjöldin þá örlagaríka daga þegar hagkerfið rambaði á barmi hruns og sakar stjórnvöld um að hafa tekið kolrangar ákvarðanir, þrátt fyrir alvarleg viðvörunarorð. Það voru skelfileg mistök að þjóðnýta Glitni, segir hann og upplýsir einnig hvernig stjórnvöld virtu ekki viðlits tilboð um að losna undan Icesave ábyrgðum sama dag og neyðarlög voru sett í landinu. Þetta telur Björgólfur Thor að skýri hin harkalegu viðbrögð Breta og alvarlega milliríkjadeilu landanna.

Seðlabanki svarar ekki fullyrðingum Björgólfs Thors

Engin svör fást í Seðlabankanum við fullyrðingum Björgólfs Thors Björgólfssonar um að bankinn hefði getað afstýrt óvissunni með Icesavereikninganna og milliríkjadeilunni sem hún hefur skapað.

Vissi ekki af tilboði breskra yfirvalda varðandi Icesave

Forsætisráðherra og Seðlabankinn segjast ekki hafa vitað af tilboði breskra fjármálayfirvalda um að færa Icesave reikninga undir breska ábyrgð með hraði. Forsætisráðherra segist ekki hafa vitað um tvö hundruð milljarða punda lánaósk Landsbankans því til tryggingar. Björgólfur Thor Björgólfsson segir bæði forsætisráðherra og Seðlabankann hafa vitað af þessu og fara því með rangt mál.

Björgólfur Thor: Seðlabankinn svarar með hálfkveðnum vísum og aðdróttunum

Bankastjórum Seðlabankans var kunnugt um boð breska fjármálaeftirlitsins um flýtimeðferð, segir Björgólfur Thor Björgólfsson í yfirlýsingu. Hann hefur sagt að bresk yfirvöld hafi boðist til að taka yfir alla Icesave-reikninga degi áður en neyðarlögin voru sett. Það var þó gegn því að Landsbankinn greiddi 200 milljónir punda, eða því sem nemur um 37 milljörðum króna, sem tryggingu.

Segja Björgólf Thor fara með rangt mál

Í bréfi til bankastjórnar Seðlabanka Íslands mánudaginn 6. október sl. kynnti bankastjórn Landsbanka Íslands að bankinn þyrfti fyrirgreiðslu að fjárhæð 200 milljónir punda frá Seðlabanka Íslands vegna útstreymis sem orðið hefði í útibúi þeirra í Bretlandi auk 53 milljóna punda láns vegna dótturfélags Landsbankans í Lundúnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×