Innlent

Björgólfur Thor: Seðlabankinn svarar með hálfkveðnum vísum og aðdróttunum

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson.

Bankastjórum Seðlabankans var kunnugt um boð breska fjármálaeftirlitsins um flýtimeðferð, segir Björgólfur Thor Björgólfsson í yfirlýsingu.

Björgólfur hefur sagt að bresk yfirvöld hafi boðist til að taka yfir alla Icesave-reikninga degi áður en neyðarlögin voru sett. Það var þó gegn því að Landsbankinn greiddi 200 milljónir punda, eða því sem nemur um 37 milljörðum króna, sem tryggingu.

,,Þá segir Seðlabanki Íslands að frásögn mín af rás atburða sé röng. Sú fullyrðing er án nokkurs rökstuðnings. Slíkur málfutningur dæmir sig sjálfur," segir Björgólfur.

Mikilvægasta verkefni íslenska fjármálalífsins um þessar mundir er að efla traust á fjármálastofnunum, að mati Björgólfs. ,,Þar ríður mest á að Seðlabanki Íslands fari fyrir öðrum. Svo er ekki þegar hann gerir ekki með neinum hætti viðunandi grein fyrir ákvörðunum sínum heldur svarar með hálfkveðnum vísum og aðdróttunum."

Ítarlegt viðtal verður við Björgólf Thor í fréttaskýringaþættinum Kompási á Stöð 2 í kvöld. Þátturinn er í opinni dagskrá.

Yfirlýsing Björólfs Thors í heild sinni:

,,Seðlabanki Íslands sendi síðdegis í dag frá sér athugsemdir vegna ummæla minna í sjónvarpsþætti sem birt voru í gær. Þar segir að í bréfi frá mánudegi 6. október sl. og í samtölum við forsvarsmenn Landsbankans hafi ekki verið minnst á flýtimeðferð breska fjármálaeftirlitsins, FSA. Þetta er ekki rétt. Bankastjórum Seðlabankans var kunnugt um boð breska fjármálaeftirlitsins um flýtimeðferð og geta fleiri staðfest það. Þá var einnig þeim ráðherrum í ríkisstjórn Íslands sem helst hafa unnið að úrlausn vanda íslensku fjármálafyrirtækjanna kunnugt um boð breska eftirlitsins. Allar líkur voru á því að útstreymi fjármuna úr útibúi Landsbankans í London hefði minnkað stórlega við tilkynningu í Englandi um flýtimeðferð FSA og því mun minni líkur á að fjárþörf Landsbankans margfaldaðist eins og Seðlabankinn lætur í veðri vaka í svari sínu.

Þá segir Seðlabanki Íslands að frásögn mín af rás atburða sé röng. Sú fullyrðing er án nokkurs rökstuðnings. Slíkur málfutningur dæmir sig sjálfur.

Einnig kemur á óvart að Seðlabanki Íslands beri fyrir sig búið hafi verið að ákveða í samráði við forsætisráðherra að lána Kaupþingi 500 milljónir Evra þegar Landsbankinn fékk synjun Seðlabankans eftir hádegi mánudaginn 6. október. Tilkynning um lán til Kaupþings kom ekki fyrr en síðar þennan dag. Þá kemur einnig á óvart að Seðlabanki hafi um hádegi þennan mánudag reiknað með að ríkið legði 600 milljónir Evra í hlutafé í Glitni þegar fáeinum klukkustundum síðar var kynnt á Alþingi frumvarp um neyðarlög sem boðaði þjóðnýtingu bankanna.

Mikilvægasta verkefni íslenska fjármálalífsins um þessar mundir er að efla traust á fjármálastofnunum. Þar ríður mest á að Seðlabanki Íslands fari fyrir öðrum. Svo er ekki þegar hann gerir ekki með neinum hætti viðunandi grein fyrir ákvörðunum sínum heldur svarar með hálfkveðnum vísum og aðdróttunum.

Að ofansögðu má sjá að ég stend við orð mín í sjónvarpsþættinum Kompás.

Björgólfur Thor Björgólfsson"
















Tengdar fréttir

Seðlabanki svarar ekki fullyrðingum Björgólfs Thors

Engin svör fást í Seðlabankanum við fullyrðingum Björgólfs Thors Björgólfssonar um að bankinn hefði getað afstýrt óvissunni með Icesavereikninganna og milliríkjadeilunni sem hún hefur skapað.

Segja Björgólf Thor fara með rangt mál

Í bréfi til bankastjórnar Seðlabanka Íslands mánudaginn 6. október sl. kynnti bankastjórn Landsbanka Íslands að bankinn þyrfti fyrirgreiðslu að fjárhæð 200 milljónir punda frá Seðlabanka Íslands vegna útstreymis sem orðið hefði í útibúi þeirra í Bretlandi auk 53 milljóna punda láns vegna dótturfélags Landsbankans í Lundúnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×