Vissi ekki af tilboði breskra yfirvalda varðandi Icesave 27. október 2008 19:26
Forsætisráðherra og Seðlabankinn segjast ekki hafa vitað af tilboði breskra fjármálayfirvalda um að færa Icesave reikninga undir breska ábyrgð með hraði. Forsætisráðherra segist ekki hafa vitað um tvö hundruð milljarða punda lánaósk Landsbankans því til tryggingar. Björgólfur Thor Björgólfsson segir bæði forsætisráðherra og Seðlabankann hafa vitað af þessu og fara því með rangt mál. Í viðtali við Kompás segir Björgólfur Thor að Seðlabanki Íslands hefði getað afstýrt óvissunni sem ríki um Icesave reikninga í Bretlandi og milliríkjadeilunni við Breta með tvö hundruð milljóna punda láni. Þá hefði Icesave verið fært undir breska ábyrgð á fimm dögum. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir að lengi hafi verið þrýst á Landsbankann að færa Icesave reikninga sína í dótturfélag og þannig undir breska ábyrgð. Geir segir fráleitt að gera að því skónna að íslensk stjórnvöld eða Seðlabankinn hafi reynt að standa í vegu fyrir því að þetta gerðist eða trufla það ferli. ,,Ég þekki ekki þetta nákvæmlega með þessi 200 milljón pund. Hef ekki upplýsingar um það." Seðlabankastjórar vildu ekki koma í viðtal vegna málsins í dag en bankinn gerir athugasemdir í bréfi. Þar segir að bréf frá Landsbankanum mánudaginn sjötta október hafi verið óskað eftir 200 milljóna punda fyrirgreiðslu Seðlabankans vegna útstreymis í útibúi þeirra í Bretlandi auk 53 milljóna punda láns vegna dótturfélags Landsbankans í Lundúnum. Í samtölum við forsvarsmenn bankans hafi ekki komið fram að þó umbeðin fjárhæð fengist væri óvíst hvort hún dygði og fjárþörfin gæti hækkað. Ekki hafi verið minnst á flýtiafgreiðslu breska fjármálaeftirlitsins. Því sé fullyrðing Björgólfs Thors að 200 milljóna punda fyrirgreiðsla dygði til að leysa allan vanda Landsbankans standist ekki. Einnig sé frásögn hans að rás atburða röng. Í yfirlýsingu Björgólf Thors sem barst skömmu fyrir fréttir segir að hann standi við orð sín í sjónvarpsþættinum Kompás. Hann segir Seðlabankann svara með hálfkveðnum vísum og aðdróttunum.
Tengdar fréttir Seðlabanki svarar ekki fullyrðingum Björgólfs Thors Engin svör fást í Seðlabankanum við fullyrðingum Björgólfs Thors Björgólfssonar um að bankinn hefði getað afstýrt óvissunni með Icesavereikninganna og milliríkjadeilunni sem hún hefur skapað. 27. október 2008 12:00 Björgólfur Thor: Seðlabankinn svarar með hálfkveðnum vísum og aðdróttunum Bankastjórum Seðlabankans var kunnugt um boð breska fjármálaeftirlitsins um flýtimeðferð, segir Björgólfur Thor Björgólfsson í yfirlýsingu. Hann hefur sagt að bresk yfirvöld hafi boðist til að taka yfir alla Icesave-reikninga degi áður en neyðarlögin voru sett. Það var þó gegn því að Landsbankinn greiddi 200 milljónir punda, eða því sem nemur um 37 milljörðum króna, sem tryggingu. 27. október 2008 18:04 Segja Björgólf Thor fara með rangt mál Í bréfi til bankastjórnar Seðlabanka Íslands mánudaginn 6. október sl. kynnti bankastjórn Landsbanka Íslands að bankinn þyrfti fyrirgreiðslu að fjárhæð 200 milljónir punda frá Seðlabanka Íslands vegna útstreymis sem orðið hefði í útibúi þeirra í Bretlandi auk 53 milljóna punda láns vegna dótturfélags Landsbankans í Lundúnum. 27. október 2008 16:22 Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Erlent Fleiri fréttir „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Sjá meira
Seðlabanki svarar ekki fullyrðingum Björgólfs Thors Engin svör fást í Seðlabankanum við fullyrðingum Björgólfs Thors Björgólfssonar um að bankinn hefði getað afstýrt óvissunni með Icesavereikninganna og milliríkjadeilunni sem hún hefur skapað. 27. október 2008 12:00
Björgólfur Thor: Seðlabankinn svarar með hálfkveðnum vísum og aðdróttunum Bankastjórum Seðlabankans var kunnugt um boð breska fjármálaeftirlitsins um flýtimeðferð, segir Björgólfur Thor Björgólfsson í yfirlýsingu. Hann hefur sagt að bresk yfirvöld hafi boðist til að taka yfir alla Icesave-reikninga degi áður en neyðarlögin voru sett. Það var þó gegn því að Landsbankinn greiddi 200 milljónir punda, eða því sem nemur um 37 milljörðum króna, sem tryggingu. 27. október 2008 18:04
Segja Björgólf Thor fara með rangt mál Í bréfi til bankastjórnar Seðlabanka Íslands mánudaginn 6. október sl. kynnti bankastjórn Landsbanka Íslands að bankinn þyrfti fyrirgreiðslu að fjárhæð 200 milljónir punda frá Seðlabanka Íslands vegna útstreymis sem orðið hefði í útibúi þeirra í Bretlandi auk 53 milljóna punda láns vegna dótturfélags Landsbankans í Lundúnum. 27. október 2008 16:22