Afríkuleiðtogar funda um ástandið í Simbabve 25. júní 2008 12:21
Leiðtogar ríkja í sunnanverðri Afríku koma saman í Svasílandi í dag til að ræða ástandið í Simbabve. Forsætisráðherra Kenía varar við þjóðarmorðum þar, svipuðum þeim sem framin voru í Rúanda fyrir fjórtán árum, ef alþjóðasamfélagið grípi ekki þegar í taumana. Allt stefnir í að Robert Mugabe verði áfram forseti Simbabve. Seinni umferð forsetakosninganna, sem fara eiga fram á föstudaginn, verður ekki frestað þó Morgan Tsvangirai, frambjóðandi stjórnarandstöðunnar, hafi tilkynnt um helgina að hann væri hættur við framboð sitt. Breska dagblaðið Guardian birtir í dag bréf eftir Tsvangirai þar sem hann hvetur Sameinuðu þjóðrnar til að einangra Mugabe og segir nauðsynlegt að senda friðargæslulið til Simbabve. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur fordæmt ofbeldi gegn stjórnarandstöðunni í Simbabve sem var ástæðan fyrir því að Tsvangirai dró sig í hlé og leitaði hælis í sendiráði Hollands í Harare. Leiðtogar ríkja í sunnanverðri Afríku koma saman til fundar um málið í Mbabane, höfuðborg Svasílands, í dag. Thabo Mbeki, forseti Suður-Afríku verður ekki viðstaddur en hann hefur reynt að miðla málum í deilunni. Hann hefur verið gagnrýndur fyrir að ganga ekki fram af nægilegri hörku í málinu. Talsmaður Mbekis segir að honum hafi ekki verið boðið en það er þvert á það sem kemur fram í tilkynningu um fundinn. Talsmaður ríkisstjórnar Mugabes segir að fulltrúum hennar hafi ekki verið boðið. Raila Odinga, forsætisráðherra Kenía, varar við því að ef ekkert verði að gert geti komið til umfangsmikilla átaka í Simbabve sem leiði til þjóðarmorða svipuðum þeim sem framin voru í Rúanda 1994 þegar átta hundruð þúsund Tútsar og hófsamir Hútúar voru myrtir á hundrað dögum.
Mest lesið Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Innlent Átökin ná nýjum hæðum Erlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Þjófar réðust á starfsmann verslunar Innlent Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Erlent Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Innlent Mál Margrétar fyrir opnum tjöldum Innlent Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Innlent Útilokað að þeir hafi ekki vitað af efnunum og fá þunga dóma Innlent Fleiri fréttir Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Sjá meira