Fengu fjölmargar ábendingar um morðingja Höglund í fyrra 14. apríl 2008 12:15
Lögregluyfirvöldum í Svíþjóð bárust fjölmargar ábendingar um morðingja hinnar 10 ára gömlu Englu Juncosu Höglund í fyrra, en fylgdi þeim ekki eftir. Tilviljun réð því að morðinginn framdi verknaðinn. Engla Juncosa Höglund hvarf sporlaust er hún var á leið heim af fótboltaæfingu í síðustu viku. Umfangsmikil leit hófst í kjölfarið. Lögregla komst á sporið þegar áhugaljósmyndari náði mynd af stúlkunni fyrir tilviljun og tæpri mínútu síðar náðist mynd af rauðri SAAB-bifreið á sama vegi, sem síðar reyndist í eigu morðingjans. Lögregla handtók manninn sem neitaði sök í fyrstu en hann viðurkenndi síðar verknaðinn og vísaði lögreglu á lík stúlkunnar. Hann viðurkenndi jafnframt að hafa myrt 31 árs gamla konu, Pernillu Hellgren, í Falun árið 2000. Morðinginn heitir Anders Eklund og er 42 ára vörubílstjóri. Aftonbladet hefur eftir félaga Eklunds að morðið á Englu hafi verið óundirbúið og að tilviljun hafi ráðið því að hún hafi orðið fyrir valinu. Hann segir morðið ekki framið í kynferðislegum tilgangi. Hann mun hafa myrt stúlkuna sama dag og hann rændi henni. Eftir morðið kom hann við á veitingastað í nágrenninu og gæddi sér á pítsu. Í nóvember í fyrra sýndi sænsk sjónvarpsstöð fréttaþátt um morðið á Pernillu Hellgren. Eftir þáttinn bárust lögreglunni yfir 30 vísbendingar, þar af nokkrar sem beindust að Eklund. Lögreglan hafði því fimm mánuði til að yfirheyra hann vegna morðsins en fylgdi ábendingunum ekki eftir. Hefur lögreglan verið harðlega gagnrýnd vegna málsins og hefur sérstök nefnd verið skipuð til að rannsaka vinnubrögð lögreglunnar.
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Fleiri fréttir Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Sjá meira