Erlent

Sex látnir eftir skotbardaga í Istanbúl

SHA skrifar

Þrír lögreglumenn og þrír árásarmenn liggja í valnum eftir skotbardaga fyrir utan ræðismannaskrifstofu Bandaríkjanna í Istanbúl í morgun. Tveir til viðbótar liggja særðir á sjúkrahúsi. Ekki er enn vitað um ástæðu skotárásarinnar eða hverjir stóðu á bakvið hana. Samkvæmt heimildum Reuters fréttastofunnar var þó einn árásarmannanna með sýrlenskt vegabréf.

Vitni á staðnum sögðu að skotbardaginn hafi staðið yfir í stundarfjórðung og að árásarmennirnir hafi verið fjórir. Svo virðist sem þeir hafi keyrt upp að ræðismannaskrifstofunni, sem er staðsett í útjaðri Istanbúl, þrír þeirra hafi stigið úr bifreiðinni og strax hafið skotárás á öryggisverði og lögreglumenn.

Fjórði árásarmaðurinn komst undan á bíl árásarmannanna og leitar lögreglan nú mannsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×