Erlent

Málverk eftir Churchill selt á tugmilljónir

Olímálverk eftir Winston Churchill, sem nefnist Sólarlag yfir Atlasfjöllum, seldist á rúmlega 31 milljón króna á uppboði í New York í dag.

Málverkið er af sólarlagi í Marokkó en Churchill fór með Franklin Roosevelt á staðinn þar sem verkið var málað þegar þeir hittust í landinu í seinni heimsstyrjöldinni.

Ekki er vitað hver kaupandinn að verkinu er en hann keypti það í gegn um síma

Churchill málaði verkið á svölum hótels sem hann dvaldi á þegar hann var í fríi í Marrakesh árið 1935.

Árið 1943, í miðri seinni heimstyrjöldinni, kom Churchill aftur til Marókkó til þess að taka þátt í Casablanca ráðstefnunni. Þá fór hann og sýndi Roosevelt landslagið sem hann hafði málið áratug áður.

Olímálverk eftir Churchill hafa selst á allt að 70 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×