Erlent

Sakar Karzai um að hindra aðgerðir fíkniefnalögreglu

Fyrrum yfirmaður í bandarísku fikniefnalögreglunni segir að Hamid Karzai forseti Afganistan hindri aðgerðir lögreglunnar til að draga úr eiturlyfjavandamálum landsins.

Hann segir að Karzai haldi hlífiskildi yfir nokkrum eiturlyfjakóngum í landinu og leyfi spillingu upp að ákveðnu marki.

Karzai aftur á móti heldur því fram að stjórn sín hafi dregið úr eiturlyfjaframleiðslunni í landinu sem er einkum opíumrækt. Tölur sýna hinsvegar að opíumræktin hefur aldrei verið meiri í sögu landsins en nú.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×