Veðmálafíklar hafa nú fundið nýstárlega leið til að svala þörfum sínum. Þeir veðja nú á hvaða egg muni klekjast fyrst út.
Eggycam er nýtt fyrirbrigði á vefnum en það sýnir 10 hænuegg í hitakassa og geta menn veðjað á hvað af eggjunum muni klekjast út fyrst. Ágóðinn af þessu rennur til góðgerðarstarfsemi.
Hingað til hafa um 100 manns veðjað á eggin á hverjum klukkutíma síðan að Eggycam var sett upp og þúsundir manna fylgjast með eggjunum á hverjum degi. Þau eiga þó ekki að klekjast úr fyrr en í fyrsta lagi 14. ágúst.