Erlent

Musharraf hyggst hætta

Pervez Musharraf hyggst segja af sér embætti. Þetta kom fram í ávarpi hans í morgun. Ávarpsins hefur verið beðið með talsverðri eftirvæntingu. Undanfarna daga hefur pakistanska stjórnin sakað Musharraf um embættisbrot. Því hefur verið mikill þrýstingur á hann að segja af sér embætti.

Varnarmálaráðherrann í Pakistan sagði í gær að stjórnvöld myndu leggja fram kærur gegn Musharraf innan tveggja daga, væri hann ekki búinn að tilkynna um afsögn sína fyrir þann tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×