Fyrirætlanir stjórnvalda í Suður-Afríku um að lögleiða vændi fyrir heimsmeistarakeppnina í fótbolta þar í landi árið 2010 mæta mikilli mótstöðu innan stjórnarandstöðunnar í landinu sem og ýmissa trúfélaga.
Þessir aðilar segja að það væri reiginhneyksli ef þessi áform ná fram að ganga. Stjórnvöld benda hinsvegar á að vændi hafi verið löglegt á síðustu heimsmeistarakeppni í Þýskalandi og það hafi gefist vel.
Og ekki væri hægt að líta framhjá því að umfangsmikil vændisstarfsemi færi fram á viðburðum sem þessum hvort sem það væri löglegt eða ekki.