Erlent

Ronnie Wood kominn í meðferð

Ronnie Wood gítarleikari hljómsveitarinnar Rolling Stone er kominn í meðferð gegn áfengissýki.

Wood hefur verið mikið í sviðsljósi breskra fjölmiðla að undanförnu eftir að hann datt í það, náði sér í tvítuga rússneska bardömu sem kærustu og flutti með henni til Írlands. Eiginkona hans til síðustu 23 ára fór fram á skilnað. Það var sonur Woods sem sótti hann til Írlands og kom honum á meðferðarstöð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×