NATO í tilvistarkreppu - Ræður ímyndarsérfræðing frá Coke Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 17. júlí 2008 12:02 Ráðamenn ríkja NATO á fundi í Búkarest.
Stjórnarherrar Atlantshafsbandalagsins (NATO) hafa ákveðið að ráðast í markaðsherferð til þess að styrkja ímynd bandalagsins. Bandalagið virðist svo sannarlega í einhvers konar tilvistarkreppu því til þess að hjálpa sér hefur það fengið til liðs við sig einn aðalímyndarsérfræðing Coca-Cola fyrirtækisins. Frá þessu greinir The New York Times í gær. Lögmæti bandalagsins í húfi NATO fagnar sextíu ára afmæli sínu á næsta ári en á tímum alþjóðavæðingar og brottnám gömlu austur og vestur blokkanna þarfnast bandalagið greinilega endurskipulagningar á hugmyndafræði sinni. Hér áður fyrr stóð NATO vörð um vestrið gegn austrinu en í dag eru aðalvígstöðvarnar í Afganistan og fundarsölunum í Brussel. „Ef fólk finnur ekki tenginguna á milli þess hvað hermennirnir eru að gera og þeirra eigin öryggi, þá er lögmæti [NATO] í húfi," sagði Jean- François Bureau, háttsettur embættismaður hjá NATO, í viðtali við The New York Times. Álit almennings versnar Nýlegar viðhorfskannanir eru NATO ekki í hag. Þrátt fyrir að fjöldi þeirri sem telja að NATO sé nauðsynlegt fyrir öryggi heimsins aukist um 4% í Bandaríkjunum frá árunum 2002 til 2007 dregst hann saman um 19% í Þýskalandi, 13% í Ítalíu og 12% í Bretlandi. Þess fyrir utan er talið að aðeins mjög lítill hluti íbúanna innan NATO þekki almennilega hvert hlutverk og tilgangur bandalagsins er. Danir borga fyrir NATO TV Til að mæta þessari ímyndarkreppu NATO hefur bandalagið sett á laggirnar sérstaka sjónvarpsstöð á netinu en hún verður í upphafi fjármögnuð af Dönum. Tilgangur hennar verður að koma í veg fyrir síur óháðra fjölmiðla sem talsmaður NATO segir að einblíni of mikið á neikvæðar fréttir. Ráðamenn í Brussel gera sér grein fyrir að þeir standa frammi fyrir erfiðu verkefni og að breyta ímynd NATO hefst ekki yfir eina helgi. Þeir vita að upprunalegur tilgangur bandalagsins er brostinn og spurningin er því einfaldlega: „Hver er tilgangur NATO?"
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Fleiri fréttir Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Sjá meira