Erlent

Bush ætlar á Ólympíuleikana

George W. Bush Bandaríkjaforseti ætlar að vera viðstaddur opnunarhátíð Ólympíuleikana sem haldnir verða í Kína í næsta mánuði. Talsmaður forsetans staðfesti þetta á blaðamannafundi síðdegis.

Mannréttindasamtök hafa biðlað til stjórnmálamanna víðs vegar um heim að sniðganga leikana vegna ástands mannréttindamála í Kína.

"Forsetinn fer til Kína fyrst og fremst til þess að styðja við þá bandarísku íþróttamenn sem taka þátt á leikunum," sagði Dana Perino, talsmaður Bush, á blaðamannafundinum í dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×