Innlent

Borgarráð: Borgarstjóri spurður um veiðiferð

Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.
Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.

Borgarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna lögðu fram fyrirspurn á fundi borgarráðs fyrr í dag þar sem Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri er spurð hvort hún hafi látið kanna málavexti umtalaðar veiðiferðar sem farin var í Miðfjarðará í ágúst í fyrra.

Sjálf hefur Hanna Birna lýst því yfir að óeðlilegt sé að borgarstjóri þiggi boð af þessu tagi úr hendi fyrirtækja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Björk Vilhelmsdóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar.

Líkt og Vísir greindi frá í síðustu viku fóru Guðlaugur Þór Þórðarson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Haukur Leósson og Björn Ingi Hrafnsson í veiði í Miðfjarðará um miðjan ágúst fyrir ári. Fram hefur komið að á sama tíma var Baugur með öll veiðileyfi árinnar á leigu. Haukur segir að hann hafi greitt Baugi 480 þúsund fyrir þrjú veiðileyfi og boðið Guðlaugi, Birni Inga og Vilhjálmi að þiggja þau.

Borgarfulltrúar minnihlutans vilja einnig vita hvernig Hanna Birna hyggist bregðast við því að hugsanlega stangist ferðin á við reglur borgarinnar.




Tengdar fréttir

Vill ekki sýna fram á endurgreiðslu til Hauks

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hyggst ekki verða við beiðni Vísis um að framvísa rafrænni kvittun sem sýni endurgreiðslu hans til Hauks Leósonar vegna veiðiferðar í Miðfjarðará í ágúst á seinasta ári.

Veiðiferðin í Miðfjarðará hugsanlega rædd í borgarstjórn

Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, útilokar ekki að hann muni spyrjast fyrir um laxveiðiferðir Hauks Leóssonar, Björns Inga Hrafnssonar, Guðlaugs Þ. Þórðarsonar og Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar á vettvangi borgarráðs eða borgarstjórnar.

Þriggja daga veiði í Miðfjarðará kostar hálfa milljón

Miðfjarðará við Laugabakka er um 200 km frá Reykjavík en hún er 113 km löng með yfir tvö hundruð merktum veiðistöðum. Áin er af mörgum talin fallegust áa hér á landi en veiðisvæðið samanstendur af fjórum ám. Dagurinn í Miðfjarðará kostar um 150 þúsund krónur með gistingu í glæsilegu veiðihúsi og fæði.

Vissi ekki að Baugur var með Miðfjarðará á leigu

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, segist ekki hafa haft hugmynd um að Baugur hafi verið með Miðfjarðará á leigu þegar hann fór þangað í laxveiði í ágúst í fyrra. „Ég hef aldrei farið í boði neins fyrirtækis í veiði, aldrei,“ segir Guðlaugur í samtali við Vísi. Hann segir að Haukur Leósson, þáverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar, hafi boðið sér í ferðina. „Ég gerði síðan upp við Hauk,“ segir Guðlaugur Þór.

Jón Ásgeir og Hannes fóru ekki með í Miðfjarðará

Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður Baugs og FL Group, og Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group og þáveradndi stjórnarfromaður Gesysi Green Eneergy, voru ekki í veiðiferðinni í Miðfjarðará sem Vísir greindi frá fyrr í dag. Þetta staðfesti Jón Ásgeir Jóhannesson í samtali við Vísi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×