Erlent

Obama leiðir enn í könnunum

SHA skrifar
MYND/Reuters

Samkvæmt nýrri skoðunarkönnun Reuters fréttstofunnar leiðir Barack Obama með sjö prósentustigum í baráttunni gegn John McCain um forsetastól Bandaríkjanna.

McCain mælist með 40% fylgi en Obama mælist með 47% fylgi. Obama eykur forskot sitt um tvö prósentustig frá síðustu könnun Reuters sem birtist fyrir um mánuði síðan.

Helstu tíðindin eru hins vegar sögð harðari barátta frambjóðendanna tveggja um atkvæði óflokksbundinna kjósenda. Síðasta könnun sýndi að Obama hefði mikið forskot í þessum kjósendahópi en nýja könnunin sýnir að dregist hefur mjög saman með frambjóðendunum og er þar nú mjótt á munum. Er snögg hægri beygja Obama talin aðalástæðan.

Efnahagsmál er það sem kjósendum er efst í huga en tæplega helmingur þátttakenda í könnuninni taldi að efnahagurinn yrði aðalkosningamálið. Stríðið í Írak kom þar á eftir og í þriðja sætinu yfir þau mál sem mest brunnu á hjörtum kjósenda var eldsneytisverð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×