Innlent

Reynslulausn mikilvægt úrræði

Andri Ólafsson skrifar
Páll Winkel forstjóri fangelsismálastofnunar
Páll Winkel forstjóri fangelsismálastofnunar

Páll Winkel forstjóri fangelsismálastofnunar vísar allri gagnrýni á að kynferðsiafbrotamenn fái reynslulausn á bug.

Hann segir að reynslulausn sé mikilvægt úrræði sem geri stofnuninni kleyft að setja brotamönnum strangari skilyrði en ella.

"Með því að veita reynslulausn eftir afplánun 2/3 hluta refsitímans hefur stofnunin mjög sterkt verkfæri í höndum sem felst í almennum og sérstökum skilyrðum reynslulausnar," segir Páll.

Hann bendir á að hægt sé að setja skilyrði um að viðkomandi umgangist ekki börn, þar með talið í gegnum netið, vinni ekki með börnum, stundi ekki tómstundir þar sem börn eru og sæti sérstakri meðferð svo sem sálfræðimeðferð og eða meðferð geðlækna sé talin þörf á.

"Með þessu móti er unnt að skylda slíkan brotamann til að sæta viðeigandi læknismeðferð sem getur falist í lyfjameðferð sem honum væri alls ekki skylt að gera ef hann væri látinn afplána refsinguna að fullu," segir Páll.

"Niðurstaðan er því sú að við getum, með veitingu reynslulausnar, í mörg ár haft skipulagt eftirlit með brotamönnum. Valið snýst því um að sleppa viðkomandi án alls eftirlits eða veita honum reynslulausn með ströngum skilyrðum. Þá skal tekið fram að rannsóknir hafa sýnt að veiting reynslulausnar dregur verulega úr líkum á frekari brotum að afplánun lokinni."

Páll tekur það fram að hann geti ekki tjáð sig um málefni Ágústs Magnússonar sem nú er á reynslulauns og stundar meðfram því nám í Svíþjóð.

Vísir hefur fjallað töluvert um málið undanfarna daga. Ekki síst vegna þess hvernig fór síðast þegar Ágúst fékk reynslulausn.

Ágúst fékk með leyfi fangelsismálastofnunanr að flytja af Litla-Hrauni á áfangaheimilið Vernd veturinn 2006. Það leyfi fékk Ágúst með ströngum skilyrðum.

Nokkrum mánuðum síðar hafði hann hins vegar hætt að taka þunglyndislyfin sín og var gripinn í íbúð í Norðurmýri. Þar viðurkenndi Ágúst að hafa búist við því að finna nakta 13 ára stúlku upp í rúmi með trefil bundinn fyrir augun og herynartól fyrir eyrunum.

Hann fann í staðinn þáttagerðarmenn frá Kompás.

Í viðtali við Kompás líkti Ágúst þessu við það að falla á áfengisbindindi.










Tengdar fréttir

Yfirvöld í Uppsölum: Vissu ekkert af Ágústi barnaníðingi

Yfirvöld í Uppsala höfðu ekki hugmynd um að barnaníðingurinn Ágúst Magnússon hefði sest að í Uppsölum til að læra við biblíuskóla Livets Ord. Þetta staðfestir Juan Artioga, einn af félagsráðgjöfum bæjarskrifstofunnar í samtali við Vísi.

Barnaníðingur í biblíuskóla

Ágúst Magnússon, sem nýlega losnaði úr fangelsi eftir fimm ára fangelsisdóm sem hann fékk fyrir kynferðisbrot gegn sex drengjum, hefur hafið nám við Livets Ord biblíuskólann í Uppsölum í Svíþjóð.

Skólastjóri barnaskóla Livets Ord: Hefur áhyggjur af Ágústi barnaníðingi

Juhani Nikula, skólastjóri barnaskóla Livets Ord í Uppsölum, hefur verulegar áhyggjur af því að barnaníðingurinn Ágúst Magnússon hafi getað hafið nám í biblíuskóla Livets Ord án þess að hann vissi af því. Nikula ber ábyrgð á 700 ungmennum á aldrinum sex til sextán ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×