Erlent

Vilja lausnargjald fyrir spænska sjómenn

Enn einu skipinu hefur verið rænt úti fyrir ströndum Sómalíu. Sjóræningjar réðust um borð í spænskan túnfiskbát í gær og krefjast lausnargjalds fyrir tuttugu og sex manna áhöfn.

Fyrr í mánuðinum var franskri lúxusskútur rænt á sömu slóðu. Þrjátíu manns voru um borð. Frakakr sendu herskip og sérsveit hermanna á vettvang. Svo virðist sem lausnargjald hafi verið greitt fyrir fólkið. Sex sjóræningjanna eru nú í haldi franskra yfirvalda. Þeir voru teknir höndum í Sómalíu.

Í gær var spænska túnfiskbátnum Playa de Bakio rænt undan strönd Sómalíu, á sömu slóðum og frönsku skútunni. Að sögn spænska utanríkisráðuneytisins hafa engar fregnir borist af því að nokkur hafi særst þegar bátnum var rænt. Um borð voru tuttugu og sex sjómenn, helmingur þeirra Spánverjar.

Sómalska útvarpið hafði í morgun eftir manni, sem mun vera skipstjórinn um borð í bátnum, að allir um borð væru ómeiddir. Haft var eftir öðrum manni, sem sagðist vera leiðtogi sjóræningjanna, að þeir væru frá Sómalíu og vildu peninga í skiptum fyrir gísla sína. Engin upphæð var þó tiltekin eða þá hvernig skipta ætti á peningunum og fólkinu.

Spænskt herskip hefur verið sent á vettvang en túnfiskbátnum er nú siglt til hafnar í Sómalíu. Spánverjar hafa óskað eftir aðstoð annarra ríkja sem eru með hermenn eða herskip á svæðinu.

Sjórán eru tíð undan strönd Sómalíu og mannrán einnig algeng á landi. Lítið eru löggæslu í landinu enda berjast stjórnarhermenn og uppreisnarmenn um völdin. Mannræningjarnir hafa hingað til flestir farið vel með gísla sína í von um ríflega greiðslu fyrir þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×