Tuttugu og tvö þúsund látnir í Búrma 6. maí 2008 11:54
Tala látinna eftir fellibylinn í Búrma síðastliðna helgi vex hröðum skrefum. Nú er staðfest að 22 þúsund manns hafi farist en mörg þúsund er saknað og er óttast að þeir séu allir látnir. Erfiðlega gengur að koma hjálpargögnum til hamfarasvæðanna. Hjálparstofnanirnar reyna nú hvað þær geta til að koma hjálpargögnum til þurfandi á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti þegar fellibylurinn Nargis fór yfir Búrma á föstudag, laugardag og sunnudag. Eitthvað hefur verið á reiki hvað margir fórust í hamförunum en ríkisfjölmiðillinn í Búrma hefur eftir yfirvöldum að 22 þúsund manns hafi farist og tuga þúsunda sé saknað. Hundruð þúsunda eru án vatns og rafmagns. Enn hefur ekki náðst samband við sum svæði sem urðu illa fyrir barðinu á fellibylnum. Herforingjastjórnin í Búrma hefur hingað til ekki verið þekkt fyrir samvinnu við erlendar stofnanir. Herforingjarnir hafa óskað eftir aðstoð frá hverjum sem getur lagt hönd á plóginn og þykir það sýna vel hve neyðin er mikil í landinu. Herforingjarnir hafa einnig ákveðið að fresta þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá landsins þar sem eyðileggingin er mest, þar á meðal í Rangoon. Kjósa átti um næstu helgi. Hjálparstofnanir á vegum Sameinuðu þjóðanna segja það gagnrýnivert að ekkert kerfi hafi verið til staðar sem hefði varað við fellibylnum með góðum fyrirvara. Fólk hafi ekki haft tíma til að leita skjóls áður en bylurinn skall á. Laura Bush, forsetafrú í Bandaríkjunum, gagnrýndi herforingjastjórnina í Búrma harðlega í morgun fyrir að hafa ekki varað íbúa við yfirvofandi hamförum í tíma.
Mest lesið „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Erlent Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Innlent Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show Erlent Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Erlent „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Innlent Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Innlent Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Erlent Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Erlent Spá þoku fyrir norðan og austan Veður Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Innlent Fleiri fréttir Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Sjá meira