Erlent

Mótmæli biðu Sarkozy á Írlandi

Mótmælaspjöldin voru mörg hver á frönsku svo forsetinn franski myndi örugglega skilja boðskap þeirra.
Mótmælaspjöldin voru mörg hver á frönsku svo forsetinn franski myndi örugglega skilja boðskap þeirra.

Hundruðir manna mótmæltu við komu Frakklandsforseta, Nicolas Sarkozy, til Írlands í dag vegna ummæla hans um að Írar þyrftu að kjósa aftur um Lissabon-sáttmálann. Mótmælendur kölluðu „Nei þýðir nei!" þegar Sarkozy mætti til að hitta forsætisráðherra Írlands, Brian Cowen.

Sarkozy hefur áður sagt tilgang ferðarinnar vera að hlusta og skilja ástæður þess að Írar höfnuðu sáttmálanum. Mótmælendur voru á því máli að höfnun þeirra útilokaði nokkra samþykkt á sáttmálanum og fannst ekki koma til greina að hafa aðra atkvæðagreiðslu samkvæmt fréttastofu Reuters.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×