Engin mótmæli í N-Kóreu vegna kyndilferðar 28. apríl 2008 11:15 Tekið var á móti kyndlinum á flugvelli við Pyongyang snemma í morgun. MYND/AP
Ólympíukyndlinum var tekið með kostum og kynjum í Pyongyang í Norður-Kóreu í dag eftir brösótta ferð um heiminn. Síðast í gær kom til átaka milli stuðningsmanna og andstæðinga kínverskra stjórnvalda þegar farið var með kyndilinn eftir götum Seoul í Suður-Kóreu en Kínverjar eru sakaðir um mannréttindabrot í Tíbet og víðar í landinu. Norður-Kóreumenn höfðu lofað því að ekki kæmi til mótmæla í landinu og ekki þurfti neina lögreglu til þess að gæta hlauparanna. Mannréttindasamtök hafa enda bent á að ástand mannréttindamála sé jafnvel enn verra í Norður-Kóreu en Kína og öll mótmæli eru barin niður með valdi. Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-il, var ekki viðstaddur hátíðahöld í tengslum við hlaupið með kyndilinn en það voru hins vegar tugþúsundir annarra Norður-Kóreumanna. Víða hefur komið til mótmæla þar sem hlaupið hefur verið með ólympíukyndilinn, þar á meðal í París, Lundúnum og San Francisco. Kyndillinn fer til Víetnam frá Norður-Kóreu og þaðan til Hong Kong en Ólympíuleikarnir hefjast í Peking í byrjun ágúst.
Mest lesið Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Fleiri fréttir Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Sjá meira