Erlent

Óeirðalögregla í Taílandi flýr mótmælendur

Um 150 óeirðalögreglalögreglumenn flúðu bækistöðvar sínar nærri alþjóðflugvellinum í Bangkok þegar mótmælendur réðust að þeim. Mótmælendurnir, sem vilja að ríkisstjórn landsins fari frá, hentu flugeldum og járnbútum að lögreglunni.

Stærstu flugvöllum landsins var lokað fyrir nokkrum dögum vegna mótmæla stjórnarandstæðinga. Þúsundir ferðalanga hafa verið strandaglópar í Taílandi síðan þá, þar á meðal nokkrir íslendingar. Búist var við að þeir myndu flestir leggja af stað til síns heima í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×