Geir: Bankarnir búa sig undir mikla varnarbaráttu 2. október 2008 20:13 Geir H. Haarde, forsætisráðherra.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði í stefnuræðu sinni á Alþingi að allir hafi vitað að góðærið myndi ekki vara endalaust en enginn hafi séð fyrir þann storm sem skalla á efnahagskerfi heimsins. ,,Þegar uppstreymið hættir er fall þeirra sem hæst fljúga mest," sagði Geir og bætti við að ekki bæri að örvænta þrátt fyrir þann stórsjó sem þjóðarskútan siglir nú í gegnum. ,,Við horfum fram á að íslensku bankarnir, flaggskip útrásar síðustu ára, búa sig nú undir mikla varnarbaráttu. Þurrausnar lánalindir gera íslenskum fyrirtækjum afar erfitt fyrir og þau sem færst hafa of mikið í fang berjast nú í bökkum." Öflug viðspyrna stjórnvalda víðsvegar um heiminn virðist hafa forðað heiminum frá algjöru hruni, að mati Geirs. ,,Við munum komast út úr þeim hremmingum sem yfir okkur ganga." Forsætisráðherra vék að ríkisvæðing Glitnis í ræðu sinni og sagði stjórnvöld hafa hagsmuni almennings að leiðarljósi. ,,Þessi ráðstöfun er ekkert eindæmi enda hafa ríkisstjórnir víða gripið til samskonar ráða til að koma í veg fyrir ringlureið." Í lok ræðunnar sagði Geir að brýnasta verkefni næstu mánaða sé að ná verðbólgunni niður. Hann sagði að verðbólgan væri skaðvaldur sem miklum skemmdum valdi á heimilum almennings og í rekstri fyrirtækja. Um leið og árangur næst í þeirri baráttu telur Geir að vextir lækki og með auknu jafnvægi í þjóðarbúskapnum mun gengi íslensku krónunnar styrkjast á ný sem Geir sagði of lágt.
Tengdar fréttir Staðan kallar á endurskoðun reglna fjármálakerfisins Þær þrengingar sem Íslendingar horfast í augu við nú kalla á endurskoðun reglna fjármálakerfisins og ofurlauna, sagði Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingarmálaráðherra við umræður um stefnuræðu forsætisráðherra. 2. október 2008 20:27 Forystufólk loki sig inni í Höfða og leysi vandann „Nýfrjálshyggjubyltingin er að éta börnin sín,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Steingrímur gerði efnahagsvandann að þjóðinni að umtalsefni og sagði að lærdómar heimskreppunnar miklu árið 1930 væru að rifjast upp „Hvernig var hægt að endurtaka sömu mistökin byggð á blindri trú á markaðinn?“ 2. október 2008 20:39 Guðni: Stefnuræða Geirs var um ekki neitt Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra fyrr í kvöld að þjóðin sé slegin fyrir stöðu máli í landinu. Hann sagði hlutverk stjórnmálamanna vera að róa almenning en ræða Geirs hafi aftur á móti ekki verið um neitt. 2. október 2008 20:44 Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Sjá meira
Staðan kallar á endurskoðun reglna fjármálakerfisins Þær þrengingar sem Íslendingar horfast í augu við nú kalla á endurskoðun reglna fjármálakerfisins og ofurlauna, sagði Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingarmálaráðherra við umræður um stefnuræðu forsætisráðherra. 2. október 2008 20:27
Forystufólk loki sig inni í Höfða og leysi vandann „Nýfrjálshyggjubyltingin er að éta börnin sín,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Steingrímur gerði efnahagsvandann að þjóðinni að umtalsefni og sagði að lærdómar heimskreppunnar miklu árið 1930 væru að rifjast upp „Hvernig var hægt að endurtaka sömu mistökin byggð á blindri trú á markaðinn?“ 2. október 2008 20:39
Guðni: Stefnuræða Geirs var um ekki neitt Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra fyrr í kvöld að þjóðin sé slegin fyrir stöðu máli í landinu. Hann sagði hlutverk stjórnmálamanna vera að róa almenning en ræða Geirs hafi aftur á móti ekki verið um neitt. 2. október 2008 20:44