Tuttugu og tvö þúsund látnir í hamförum í Kína 16. maí 2008 12:14
Vonir dvína nú hratt um að fleiri finnist á lífi í rústum húsa eftir jarðskjálftann mikla í Kína í upphafi vikunnar. Kínverjar staðfestu í morgun að rúmlega tuttugu og tvö þúsund manns hið minnsta hefðu farist í hamförunum. Kínversk stjórnvöld hafa áður sagt að þau óttist að tala látinna geti farið í fimmtíu þúsund manns þegar öll kurl verði komin til grafar. Fjórar komma þrjár milljónir heimila eyðilögðust í jarðskjálftanum. Aðstæður eru sérstaklega átakanlegar fyrir utan þá átta skóla sem hrundu í jarðskjálftanum. Þar bíður fjöldi grátandi foreldra í þeirri von að börn þeirra séu enn á lífi. Foreldrarnir eru yfirvöldum ævareið og segja skólana hafa verið illa byggð. Ríkisstjórnin hefur fyrirskipað rannsókn á því hvernig staðið var að byggingu þeirra. Hu Jintao Kínaforseti kom á hamfarasvæðið í morgun. Hann sagði að þó þrír sólahringar væru liðnir yrði að líta svo á að fólk væri enn á lífi í rústunum og björgunarmenn yrðu áfram að störfum. Björgunarmönnum tókst í gær að bjarga stúlku úr rústum skóla eftir að hún hafði legið þar grafin í áttatíu klukkustundir. Kínversk stjórnvöld hafa gefið leyfi til þess að sveit sérfræðinga frá Japan aðstoði við björgunarstörf en Japanir hafa langa reynslu í að fást við eftirköst öflugra jarðskjálfta.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Fleiri fréttir Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Sjá meira