Banki í gjörgæslu Fjármálaeftirlitsins Óli Kristján Ármannsson, Ingimar Karl Helgason og Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifa 8. október 2008 05:00 Í Landsbankanum Fulltrúar ríkisvaldsins, Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra, sjást hér ganga á eftir Halldóri J. Kristjánssyni, bankastjóra Landsbankans, á fund með starfsmönnum bankans í gær. Markaðurinn/GVA
Skilanefnd hefur að beiðni Fjármálaeftirlitsins (FME) tekið yfir vald hluthafafundar Landsbanka Íslands og vikið stjórn bankans frá störfum. Tilkynnt var um þetta fyrir opnun markaða í gær. Hluthafar tapa öllum sínum hlut í bankanum, þar á meðal feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson. Í kjölfarið var farið fram á greiðslustöðvun fyrir eignarhaldsfélag þeirra, Samson, sem tapar tugum milljarða króna. Bankastjórar Landsbankans, Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason, starfa áfram að beiðni skilanefndarinnar. Gjörningurinn kemur í kjölfar nýrra laga sem samþykkt voru í fyrrinótt og rýmkuðu mjög valdheimildir Fjármálaeftirlitsins. Landsbankinn hefur orðið fyrir stórfelldum úttektum af IceSave-innlánsreikningum í Bretlandi. Líkur eru taldar á að ábyrgðir vegna þeirra reikninga kunni að falla, að minnsta kosti að hluta, á íslenska ríkið sem ábyrgist innistæður íslenskra banka. Er þar munur á innlánsreikningum eins og Edge, sem er undir hatti erlends dótturfélags Kaupþings. Vandkvæði Landsbankans og raunar Glitnis líka hafa verið rakin til skorts á baklandi bankanna í nægilega öflugum gjaldeyrisvarasjóði. „Hefðu þeir komið okkur til hjálpar er ekki víst að við værum í þessari stöðu,“ segir Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra um Bandaríkjamenn. Hann segir að sóst hafi verið eftir aðstoð vestur um haf mánuðum saman, en án árangurs. Hann ræddi við aðstoðarfjármálaráðherra Bandaríkjanna í fyrrakvöld. Í gærmorgun var svo tilkynnt um að líkast til væri von á stóru láni frá Rússum. Geir H. Haarde forsætisráðherra vísaði einnig til þess að leitað hafi verið til „vinaþjóðar“ án þess að stuðningur fengist. „Þegar það gerðist urðum við að leita nýrra vina,“ sagði hann í gær. Geir upplýsti að ríkisstjórnin hefði leitað eftir lánafyrirgreiðslu hjá Rússum í sumar og hafi verið staðfest í gærmorgun fyrirgreiðsla upp á fjóra milljarða evra, jafnvirði 620 milljarða króna, á skráðu gengi Seðlabankans. Samkvæmt Seðlabankanum er búist við að lánið yrði til allt að fjögurra ára, á vöxtum 0,30 til 0,55 prósentustigum yfir Libor-millibankavöxtum. Lánið mun þó ekki að fullu frágengið og hefjast samkvæmt tilkynningu Seðlabankans viðræður við Rússa um fjármálaleg atriði innan fárra daga. Sérfræðingar fara héðan til viðræðnanna í Moskvuborg.- óká, ikh, jab / sjá Markaðinn
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira