Erlent

Fjöldi milljónamæringa yfir 10 milljónir

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Fjöldi þeirra sem eiga eignir að verðmæti ein milljón dollara eða meira fór yfir 10 milljónir í fyrra.

Þetta kemur fram í skýrslu bandarísks ráðgjafarfyrirtækis sem kannaði málið. Samanlagður auður þessa hóps hefur enn fremur vaxið um 9 prósent frá fyrra ári og meðaleign á hvern mann í hópnum er meira en fjórar milljónir dollara, jafnvirði tæpra 338 milljóna króna. Milli áranna 2006 og 2007 fjölgaði um 600.000 manns í milljónamæringahópi heimsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×