Bæjarbúum greitt fyrir að hægja sér í salerni Atli Steinn Guðmundsson skrifar 7. júlí 2008 11:25
Bæjarstjórnin í Musiri í Tamil Nadu-héraðinu á Indlandi hefur nú brugðið á þá nýbreytni að greiða íbúunum fyrir að losa hægðir sínar í salerni. Launin fyrir þetta viðvik eru ekki ýkjahá, tæpar 11 krónur á mánuði, en það munar um hvern skilding í fátækari héruðum Indlands. Tilgangurinn með salernisgreiðslunum er tvíþættur. Annars vegar að venja fólk af þeim landlæga og forna sið að ganga örna sinna þar sem það er statt hverju sinni og hins vegar að stuðla að notkun úrgangsins sem áburðar. „Við erum að reyna að gera fólkið meðvitað um verðmæti úrgangs þess," sagði Marathi Subburaman, helsti talsmaður þessa nýja fyrirkomulags, og bætti því við að með þessu móti fengist gnótt áburðar auk þess sem notkun salerna drægi úr hættu á ýmsum smitsjúkdómum. Talið er að um 330 milljónir Indverja skorti aðgang að lágmarkshreinlætisaðstöðu en ríkisstjórnin vinnur nú að því að bæta úr þessu aðstöðuleysi. Því fylgir að kynna þarf almenningi notkun hreinlætistækjanna og hvetja til hennar. Um 150 af íbúum Musiri nota nú salerni bæjarins en það er búið sérstökum söfnunartanki sem geymir úrganginn þar til honum er dreift sem áburði á akrana. CNN greindi frá þessu.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira