Erlent

Hilton byggir 300 ný hótel í Asíu

Hilton Reykjavík Nordica eins og það heitir formlega í dag.
Hilton Reykjavík Nordica eins og það heitir formlega í dag. MYND/Stefán

Hilton-hótelkeðjan hefur uppi áform um að byggja 300 ný hótel í Asíu á næstu tíu árum. Fyrir á Hilton 47 hótel í álfunni.

Hin nýju hótel verða einkum byggð í Kína og á Indlandi. Forstjóri Hilton segir í samtali við viðskiptablaðið The Wall Street Journal að verðmæti hinna nýju hótela muni nema tugum milljarða dollara. Hilton sér mikil tækifæri í vaxandi ferðamannaiðnaði í Kína og á Indlandi á sama tíma og ferðamannageirinn er að dragast saman í Bandaríkjunum vegna efnahagsástandsins þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×