Erlent

Tvær áttræðar konur dæmdar fyrir morð og svik

Tvær konur á áttræðisaldri hafa verið dæmdar í lífstíðarfangelsi í Los Angeles fyrir morð og tryggingarsvik.

Báðar hlutu þær tvöfaldan lífstíðardóm fyrir að hafa myrt tvo heimilislausa menn eftir að hafa vingast við þá og keypt líftryggingu fyrir þá báða. Ætlun kvennanna var svo að taka út líftrygginguna.

Þetta var ekki í fyrsta sinn sem konurnar eru staðnar að morðum og svikum sem þessum enda hafa þær áður hlotið dóma fyrir svipað athæfi. Talið er að þær hafi náð að svíkja tæplega 220 milljónir króna út úr tryggingarfélögum með þessum hætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×