Umhverfisvænir orkugjafar orsaka hærra matvælaverð 16. júlí 2008 19:00
Það er ekki olían sem veldur hærra matvælaverði um allan heim. Það er heldur ekki aukin eftirspurn eftir mat, veik staða dollarans, vont veður, samdráttur í útflutningi eða hlutabréfamarkaðir - heldur er það framleiðsla á svo kölluðum umhverfisvænum orkugjöfum, það er að segja olíu sem framleidd er úr korni og grænmeti. Þetta kemur fram í skýrslu sem starfsmaður Alþjóðabankans hefur gert og hefur verið lekið til fjölmiðla á Vesturlöndum. Hann fullyrðir að 75% af hækkun matvælaverðs - sem er að valda ólýsanlegum hörmungum í mörgum fátækustu löndum heims - stafi af því að kornvara er notuð til olíuframleiðslu - etanol og þessháttar - fremur en í matinn. Þetta eru allt aðrar upplýsingar en haldið hefur verið á lofti að undanförnu. Bandaríkjastjórn hefur til dæmis sagt að framleiðsla þessara 'umhverfisvænu orkugjafa' sé ekki völd nema að þriggja prósenta hækkun matvælaverðs. Nú er útlit fyrir að vestrænar ríkisstjórnir neyðist til að skoða málið aftur en þær hafa flestar hverjar hvatt til framleiðslu þessarar ætluðu umhverfisvænu orku til að draga úr áhrifum gróðurhúsalofttegunda og draga úr óseðjandi fíkn eftir útlendri olíu. Stjórnmálaleiðtogar á Vesturlöndum virðast harðákveðnir í að hafa að engu þær vísbendingar sem við höfum um að græna olían svokallaða sé að stórum hluta ábyrg fyrir verðhækkunum á matvælum, hefur breska blaðið Guardian eftir starfsmanni hjálparsamtakanna Oxfam. Afleiðingin er sú, segir hann, að á meðan stjórnmálamenn eru önnum kafnir við að halda þrýstihópum ánægðum, hefur fólk í fátækustu löndum heims ekki efni á því að borða. Alþjóðabankinn metur það svo að hækkandi matvælaverð hafi þrýst allt að hundrað milljónum manna undir fátæktarmörkin og komið hefur til uppþota þess vegna allt frá Bangladesh til Egyptalands. Evrópusambandið íhugar nú að setja reglur sem skylda íbúa sambandsríkjanna til að nota að minnsta kosti 10% af grænu olíunni á bíla sína árið 2020 - en í Brussel eru menn nú að vaka upp við þann vonda draum að slík regla gæti allt eins orðið til að matarkarfan kosti enn meira en hún gerir nú þegar.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira