Erlent

Obama vill að Bush sniðgangi Olympíuleikana

Öldungardeildarþingmaðurinn Barack Obama, sem keppir um að verða forsetaefni demókrata, telur að George Bush Bandaríkjaforseti eigi að sniðganga opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Peking.

Þetta eigi Bush að gera ef Kínverjar leggi ekki sitt af mörkum til að stöðva óöldina í Darfur-héraði í Súdan, þar sem þeir hafa lagt til vopn, og bæti stöðu mannréttinda í Tíbet.

Obama bætist með þessu í hóp demókrata sem hafa hvatt Bush til þess að sniðganga opnunarhátíðina, en áður höfðu keppninautur hans, Hillary Clinton, og Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, gert það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×