Erlent

Rottum fjölgar í dönsku þéttbýli

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Þessar tvær tengjast fréttinni þó ekki.
Þessar tvær tengjast fréttinni þó ekki.

Rottum hefur fjölgað mjög á þéttbýlissvæðum Danmerkur eftir því sem segir í tilkynningu frá sambandi sveitarfélaga í Danmörku.

Síðasta áratuginn mun hafa verið töluvert meira um að fólk sjái rottur í og við híbýli sín en áratuginn þar á undan. Er skýringin á þessu helst talin vera sú að fjárveitingar sveitarfélaga hafi ekki náð að halda í við verðskrár þeirra fyrirtækja sem annast eyðingu meindýra. Þá er ábyrgð húseigendanna sjálfra töluverð og hvetur samband sveitarfélaga Dani til að fylgjast grannt með klóaklögnum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×