Vonast til að viðræður geti haldið áfram 3. júlí 2008 11:18
Samninganefndir Læknafélags Íslands og ríkisins hittast á fundi hjá ríkissáttasemjara klukkan eitt til þess að reyna að ná samkomulagi um nýjan kjarasamning. Félagsfundur Læknafélagsins hafnaði fyrr í vikunni tilboði ríkisins upp á rúmlega 20 þúsund króna flata hækkun launa og ákvað að hefja undirbúning að verkfallsaðgerðum í haust ef ekki semst fyrir þann tíma. Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóri Læknafélagsins og formaður samninganefndar, segist vonast til að fundurinn leiði til þess að menn geti haldið viðræðum áfram. „Við erum búin að skoða ýmislegt síðustu daga og taka upp aftur úr upphaflegri kröfugerð. Það snýr meðal annars að vinnutíma, frítökurétti og hvíldartíma. Báðir aðilar voru sammála um að fara í gegnum þessa þætti," segir Gunnar. Hann bendir á að í ljósi efnahagsástandsins hafi verið rætt um skammtímasamning og því hafi í fyrstu aðeins verið horft til hækkunar launa en ákveðið að leggja áðurgreinda þætti til hliðar. „Svo komum við á ákveðna endastöð með launin og því var ákveðið að taka þessa þætti upp aftur þannig að báðir aðilar geti unað við það og skrifað undir samninga," segir Gunnar. Hann bætir við að hins vegar sé of snemmt að segja til um hvernig muni ganga.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira