Erlent

Viðbúnaður í Björgvin vegna gasleka

Frá Bergen.
Frá Bergen. MYND/Björgólfur

Lögreglan í Björgvin í Noregi lokaði í dag af svæði í miðborginni sem er um hálfur kílómetri í þvermál vegna tilkynningar um gasleka á athafnasvæði þar.

Þá var fólki á svæðinu ráðlagt að halda sig innan dyra og loka gluggum vegna lekans. Hann var rakinn er til gáms sem talinn var geyma gaskúta með efninu acetylen sem er mjög sprengifimt eftir því sem norskir miðlar segja.

Svo reyndist ekki vera en og var lokunarsvæðið þá þrengt og taldi lögregla þá litla hættu á sprengingu. Nú um klukkan hálfþrjú var umferð um svæðið svo opnuð á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×