Erlent

14 börn féllu í sjálfsmorðsárás

Frá Afganistan.
Frá Afganistan. MYND/AP

Talið er að 14 börn hafi dáið í sjálfsmorðsárás í grennd við lögreglustöð og grunnskóla í Afganistan. Börnin voru á aldursbilinu 8 til 10 ára.

Talið er árásarmaðurinn hafi ætlað að virkja sprengjuna á fundi héraðshöfðingja úr Khostu-umdæmi, sem er suðvestan af höfuðborginni Kabúl, en fundur þeirra fór fram nærri staðnum þar sem maðurinn sprengdi sig í loft upp.

David McKiernan, æðsti yfirmaður NATO í Afganistan, telur að Siraj Haqqani, leiðtogi uppreisnarmanna í norðurhluta landsins, standi á bak við árásina. Fram kemur í yfirlýsingu frá McKiernan að honum ofbjóði virðingarleysi hryðjuverkamanna fyrir mannslífum.

Þrjár systur, þrettán, fimmtán og sextán ára féllu þegar eldflaug lenti á heimili þeirra í Kabúl í morgun. Fjórir lögreglumenn féllu í sjálfsmorðssprengjuárás í höfuðborginni í gær.

Undanfarin tvö ár hefur árásum fjölgað gríðarlega í Afganistan og oftar en ekki verða saklausir borgarar fyrir barðinu á þeim. Bandaríkjamenn hafa hug á að fjölga í liði sínu í landinu en tæplega 32.000 bandarískir hermenn eru nú staddir í Afganistan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×