Kærir bandarísk verktakafyrirtæki fyrir pyntingar 6. maí 2008 12:45
Íraskur maður hefur kært tvö bandarísk verktakafyrirtæki í Írak fyrir að hafa ítrekað pyndað sig. Maðurinn var fangi í hinu alræmda Abu Ghraib fangelsi vestur af Bagdad. Emad al-Janabi var fangi í Abu Ghraib í rúma tíu mánuði frá september 2003. Hann segist hafa sætt ýmis konar pyndingum meðan hann mátti dúsa þar. Hann hefur nú kært starfsmenn öryggisþjónustufyrirtækjanna CACI og L-3 Communications - áður Titan Corporation - en starfsmenn þeirra voru að störfum í fangelsinu þegar al-Janabi var þar. Hann segir að þeir hafi stýrt yfirheyrslum yfir honum þar sem hann hafi mátt þola illa meðferð. Dómstóll í Los Angeles tekur mál al-Janabis fyrir. Hann segist vona að það varpi frekara ljósi á atburði innan veggja fangelsisins. Fangelsið var alræmt snemma árs 2004 þegar byrjað var að greina frá illri meðferð Bandaríkjamanna á föngum þar. Al-Janabi segir að sér hafi aldrei verið greint frá því af hverju hann var handtekinn og fangelsaður. Hann hafi bara verið sagður hryðjuverkamaður og að hann ætlaði að gera árás á bandaríska hermenn í Írak. Al-Janabi segir það hafa verið fjarri sanni. Fram kemur í ákæru hans að verktakar í fangelsinu hafi eyðilagt gögn í máli hans og annarra fanga og falið þá sem voru í verstu ástandi þegar fulltrúar Alþjóða Rauða krossins hafi komið að skoða fangelsið. Al-Janabi var látinn laus í júlí 2004. Honum var aldrei birt ákæra.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Sjá meira