Hillary vann stórsigur og segir baráttunni hvergi lokið 14. maí 2008 05:51
Hillary Clinton vann öruggan sigur í forkosningunum í Vestur-Virginíu eins og spáð hafði verið. Þegar þrír-fjórðu atkvæða höfðu verið talin var Hillary með 66% á móti 27% hjá Barak Obama Strax og meirihluti atkvæða hafði verið talinn og ljóst í hvað stefndi sagði Hillary Clinton að baráttu hennar fyrir útnefningu sem forsetaefni Demókrataflokksins væri hvergi nærri lokið. Margir fréttaskýrendur hafa haldið því fram að Hillary væri um það bil að gefast upp þar sem barátta hennar virðist vonlaus og kosningasjóðir hennar eru tómir. Þótt sigur Hillary væri sannfærandi voru aðeins 28 kjörmenn í boði í ríkinu. Til að fá útnefningu flokksins þarf 2025 kjörmenn. Obama hefur þegar tryggt sér 1.876 á móti 1.703 kjörmönnum Hillary. Í ræðu sem Hillary hélt í nótt sagðist hún vera ákveðnari en áður að halda baráttu sinni áfram allt til enda. Obama hafði samband við Hillary í nótt og óskaði henni til hamingju. Að öðru leyti hefur hann ekkert tjáð sig um úrslitin en þessa stundina beinir hann öllum spjótum sínum að John McCain eins og að barátta þeirra um forsetaembættið sé þegar hafin.
Mest lesið Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Fleiri fréttir Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Sjá meira