Erlent

Hjól efnahagslífsins halda áfram að snúast í Darfur

Forseti Súdans hefur verið ákærður fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð í Darfúr. En þrátt fyrir daglegar hörmungar þar halda hjól efnahagslífsins áfram að snúast.

Það er til marks um þrautseigju mannsandans og ótrúlega aðlögunarhæfni fólks, að þrátt fyrir illverkin og hörmungarnar halda íbúar Darfúrs áfram að gera það sem þeir hafa alltaf gert: að versla.

Til skamms tíma var Darfúr mikilvægur hlekkur í efnahagslífi heimsins. Nautgripir, tóbak, gúmmí, hnetur og fleiri vörur voru fluttar á markaði í Khartúm, við Persaflóann og jafnvel til Evrópu og Vesturheims.

Frá því átökin í Darfúr hófust fyrir fimm árum hafa margar þessara verslunarleiða lokast. Borgin Nyala er ekki lengur næst mikilvægasta iðnaðarborg Súdans. Nautgripir þaðan rata sjaldan á markaði í Khartúm og arabískt gúmmí, sem er uppleysanlegt í vatni og er notað í margskonar iðnaðarframleiðslu, er ekki lengur unnið í Darfúr.

Verslun er lífæð Darfúr, segir Margie Buchanan-Smith, höfundur merkrar skýrslu um ástandið í Darfúr. Hún segir að þótt margir kaupmenn hafi þurft að hætta að versla vegna átakanna, hafi nýtt neðanjarðarhagkerfi myndast í flóttamannabúðunum víðsvegar um héraðið.

Nú eru darfúrískir kaupmenn farnir að selja appelsínur og fara á milli víglínanna til að koma vörum sínum á markaði. Kornvara sem flutt er til héraðsins af Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna gengur kaupum og sölum - og timbur og húsnæði er keypt af hjálparstofnunum sem vinna á svæðinu.

Alex de Waal, sérfræðingur í málefnum Darfúrs, segist telja að þegar friður kemst loks á í héraðinu, muni koma í ljós að markaðirnir hafi skipt meira máli um afkomu fólks heldur allt hjálparstarfið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×