Erlent

Íranir falsa ljósmynd

Upprunalega myndin. Fjórar eldflaugar skjótast frá jörðu.
Upprunalega myndin. Fjórar eldflaugar skjótast frá jörðu.

Ljósmynd sem birtist á forsíðum stærstu dagblaða heims af eldflaugatilraunum Írana var fölsuð. Á myndinni sáust fjórar eldflaugar lyfta sér frá jörðu en í raunveruleikanum voru þær aðeins þrjár.

Myndinni var dreift til fjölmiðla af AFP sem fékk myndina frá upplýsingaþjónustu Íranska hersins. Þegar upp komst að átt hefði verið við myndina hvarf myndin af heimasíðu íranska hersins. Í dag dreifði AFP svo réttu myndinni til fjölmiðla sem lítur nákvæmlega eins út - fyrir utan að eina eldflaug vanta.





Á réttu myndinni eru eldflaugarnar aðeins þrjár.

"Svo virðist sem átt hafi verið við myndina með stafrænni tækni," segir í tilkynningu frá AFP. Þar segir að fjórðu eldflauginni hafi verið bætt við í staðinn fyrir að sýna að ein eldflauganna tókst aldrei á loft.

Erlendir fjölmiðlar hafa kallað Íran eitt af "öxulveldum photoshop" vegna málsins í dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×