Erlent

Ótti við hryðjuverk stöðvar flugvél á Kastrup

Ótti við hryðjuverk olli því að flugvél á leið frá Kastrup í Kaupmannahöfn til Amsterdam var kyrrsett í gærkvöldi.

Á leiðinni um borð voru fimm írakar og þegar aðrir farþegar vélarinnar komu auga á það sem þeir töldu grunsamlega hegðun Írakanna kölluðu þeir öryggislögregluna á Kastrup til. Um var að ræða að þeir höfðu skiptst á að bera tösku á einu af klósettum flugstöðvarinnar.

Fluginu var aflýst meðan málið var rannsakað. Í ljós kom að Írakarnir voru flugumferðarstjórar á leið heim af námskeiði í Helsingfors. Farþegar gistu á hóteli í nótt en vélin hélt svo til Amsterdam nú í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×