Erlent

Tveir af fimm fótum tilheyra sama manninum

Tveir af þeim fimm fótum sem fundist hafa undan Vesturströnd Kanada tilheyra sama manninum. Þetta hefur DNA rannsókn leitt í ljós.

Lögregluyfirvöld eru hinsvegar engu nær um lausn á þessari gátu. Það var í ágúst í fyrra sem fyrsti fóturinn fannst en allir eiga það sameiginlegt að hafa verið í íþróttaskóm.

Rannsókn bendir til að fæturnir hafi ekki verið höggnir eða skornir af heldur af eðlilegt rotnun valdið því að þeir urðu viðskila við fótleggina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×